Ósk um upplýsingar vegna framkvæmda við Hlíðarendaá og Ljósá á Eskifirði
Mál 1607098 Fyrst á dagskrá 25. júlí 2016, síðast 18. ágúst 2016. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Eskifjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 482 liður 3
Fyrir liggur tölvupóstur frá Ragnheiði Kristjánsdóttur íbúa á Eskifirði, beiðni um upplýsingar vegna framkvæmda við Hlíðarendaá og Ljósá á Eskifirði. Um hönnun á umhverfisfrágangi og umhverfisfegrun við Hlíðarendaá sá Landmótun, verktaki var Héraðsverk og eftirlit með framkvæmdum var á höndum Verkís. Kynningarfundur vegna framkvæmda við Hlíðarendaá var haldinn 2.mars 2016. Deiliskipulagstillaga vegna Hlíðarendaár var til sýnis frá 24. mars til 5. maí 2016 og frestur veittur til athugasemda.
Stefnt er á að bjóða út framkvæmdir við Ljósá haustið 2016 en Ljósárverkefnið var kynnt á íbúafundi 9.mars 2016. Settar verða upplýsingar um framkvæmd Ljósárverkefnisins á heimasíðu sveitarfélagsins, þegar þær liggja fyrir. Erindi er vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 150 liður 7

Bæjarstjórn, fundur 204 liður 4.3
Fundargerðin „Bæjarráð - 482“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.