Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Hraðbanki á Stöðvarfirði

Mál 1605087 Fyrst á dagskrá 17. maí 2016, síðast 18. ágúst 2016. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Stöðvarfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Bæjarráð, fundur 474 liður 16

    Framlagt bréf frá Íbúasamtökum Stöðvarfjarðar þar sem mótmælt er harðlega lokun hraðbanka Landsbanka Íslands á Stöðvarfirði.

    Bæjarráð tekur heilshugar undir með íbúasamtökum Stöðvarfjarðar og telur það með öllu óásættanlegt að ekki skuli vera hraðbankaþjónusta á Stöðvarfirði. Jafnframt hafa borist kvartanir frá Eskifirði vegna lokunar hraðbanka þar. Á undanförnum árum hefur útibúum Landsbankans farið fækkandi í sveitarfélaginu og hefur Landsbankinn ávallt vísað til þess að að ákveðin lágmarksþjónusta yrði áfram til staðar. Því fer bæjarráð fram á við Landsbanka Íslands að staðið verði við þau fyrirheit sem gefin hafa verið og haldið sé uppi hraðbankaþjónustu á Stöðvarfirði og Eskifirði. Bæjarstjóra falið að fylgja málinu eftir við stjórnendur bankans.

  2. Bæjarstjórn, fundur 201 liður 1.16

    Fundargerðin „Bæjarráð - 474“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarráð, fundur 481 liður 10

    Framlagt til kynningar bréf bankastjóra Landsbankans frá 30.júní s.l. er varðar hraðbanka og reiðufjárafgreiðslu á Stöðvarfirði auk bréfa bæjarstjóra til forsvarsmanna bankans sama efnis frá 13.júní.

    Bæjarráð ítrekar fyrri samþykkir sínar um mikilvægi hraðbankaþjónustu á Stöðvarfirði.

  4. Bæjarstjórn, fundur 204 liður 3.10

    Fundargerðin „Bæjarráð - 481“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is