Seyðisfjarðargöng
Mál 1603097 Fyrst á dagskrá 4. apríl 2016, síðast 15. ágúst 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 468 liður 4
Fjarðarheiðagöng - Bókun
Framlögð bókun bæjarstjórnar Seyðisfjarðarkaupstaðar frá 16.mars er varðar Fjarðarheiðargöng.
-
Bæjarstjórn, fundur 198 liður 3.4
Fundargerðin „Bæjarráð - 468“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Fjarðarheiðagöng - Bókun
-
2019
Bæjarstjórn, fundur 272 liður 6
Forseti bæjarstjórnar mælti fyrir bókun.
Lesa alla bókunina (190 orð til viðbótar)
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar fagnar því að skýrsla starfshóps, á vegum Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, um legu Seyðisfjarðargangna sem lengi hefur verið beðið eftir sé kominn fram. Að mati hópsins skilar samfélaginu á Austurlandi mestu, með tilliti til þróunar byggðar og atvinnulífs, að ráðist verði í hringtengingu með göngum undir Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar og þaðan til Mjóafjarðar og Norðfjarðar. Það er ljóst að samfélögin á Seyðisfirði og Mjóafirði geta ekki beðið lengur eftir þessum samgöngubótum frekar en Austurland. Því hvetur bæjarstjórn Fjarðabyggðar ráðherra samgöngumála og Alþingi til að setja gerð jarðgangna til að tengja þessi samfélög í forgang við endurskoðun samgönguáætlunar á þingi komandi. Þannig verði hægt að hefja framkvæmdir sem fyrst við gerð þessara mikilvægu samgöngubótar sem skiptir Austurland allt svo miklu máli.
Bæjarstjórn Fjarðabyggðar gerir sér vel grein fyrir því að umræddar samgöngubætur eru mjög kostnaðarsamar en minnir á í því samhengi þau miklu útflutningsverðmæti sem verða til í Fjarðabyggð og Austurlandi öllu. Því er sterk byggð á Austurlandi, sem og á landinu í heild, íslensku samfélagi svo mikilvæg. Þá telur bæjarstjórn Fjarðabyggðar eðlilegt að skoðar verði allar útfærslur við gerð og rekstur slíkrar samgöngubótar ef það verður til flýtingar hennar.