735 - Strandgata 122 - Byggingarleyfi, smáhýsi
Mál 1602111 Fyrst á dagskrá 22. febrúar 2016, síðast 3. mars 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 138 liður 3
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Sævar Guðjónssonar fh. Ferðaþjónustunnar á Mjóeyri, dagsett 18. febrúar 2016, þar sem sótt er um leyfi til að byggja tvö smáhýsi á lóð fyrirtækisins að Strandgötu 122 á Mjóeyri við Eskifjörð. Smáhýsin eru 29,2 m2 og 93, 9 m3 hvort. Hönnuður er Anna Margrét Hauksdóttir, AVI, arkitektúr, verkfræði, hönnun. Byggingarstjóri er Jón Arnórsson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.
-
Bæjarstjórn, fundur 196 liður 3.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 138“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.