Beiðni um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti 2016
Mál 1601273 Fyrst á dagskrá 15. febrúar 2016, síðast 18. febrúar 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Styrkir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Bæjarráð, fundur 463 liður 10
Beiðni fræðslustjóra og íþrótta- og tómstundafulltrúa um styrk til að mæta álögðum fasteignaskatti fyrir árið 2016 vegna ungmennafélaganna Leiknis og Austra, Golfklúbbs Norðfjarðar (golfskáli 1 og 2) og hestamannafélagsins Blæs (Dalahöllin). Um er að ræða styrk alls að fjárhæð kr. 800.560.-
Bæjarráð samþykkir tillögu um styrkveitingar með vísan til 2. gr. reglna Fjarðabyggðar um styrkveitingar til greiðslu fasteignaskatts félaga sem reka starfsemi sem ekki er rekin í ágóðaskyni.
-
Bæjarstjórn, fundur 195 liður 3.10
Fundargerðin „Bæjarráð - 463“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.