Hringtorg á gatnamót vegna Norðfjarðargangna
Mál 1601229 Fyrst á dagskrá 8. febrúar 2016, síðast 18. febrúar 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2016
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 137 liður 9
Lagt fram bréf Íbúasamtaka Eskifjarðar, dagsett 26. janúar 2016, þar óskað er eftir því að bæjaryfirvöld fari fram á að hringtorg verði sett á gatnamót frá Eskifirði að nýjum Norðfjarðarvegi.
Lagt fram bréf Vegagerðarinnar, dagsett í febrúar 2016, vegna T-gatnamóta ásamt fylgiskjölum.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd minnir á að áður en til útboðs Norðfjarðarganga kom hafi öll framkvæmdin verið kynnt íbúum, vandlega yfirfarin og samþykkt. Nefndin mun því ekki fara fram á að T-gatnamótum við Eskifjörð verði breytt í Hringtorg
-
Bæjarstjórn, fundur 195 liður 4.9
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 137“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.