Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

Fagraeyri - Upplýsingaskilti um hvalstöðina við Fögrueyri í Fáskrúðsfirði

Mál 1601208 Fyrst á dagskrá 25. janúar 2016, síðast 4. febrúar 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Fáskrúðsfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 136 liður 4

    Óskað er eftir áliti og aðkomu Fjarðabyggðar að fyrirhugaðri uppsetningu á upplýsingaskilti um hvalstöðina við Fögrueyri, við Suðurfjarðaveg í Fáskrúðsfirði. Fagraeyri er niðri við sjó á jörð Víkurgerðis, milli Víkur og Eyrar. Umrætt skilti kæmi til með að standa á uppflyllingu fyrir neðan veg eða við vegslóða sem er til staðar niður á eyrina. Vegsýn á svæðinu er mjög góð og ekki nærliggjandi blindhæð eða blindbeygja. Til greina kemur að koma upp upplýsingaskilti um áhugaverðan stað 200 metrum frá fyrirhuguðu upplýsingaskilti.

    Nefndin tekur jákvætt í erindið og óskar eftir umsögn menningar- og safnanefnd um merkingu sögustaða í Fjarðabyggð.

  2. Bæjarstjórn, fundur 194 liður 3.4

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 136“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is