Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2016

740 Þiljuvellir 13 - byggingarleyfi - fluttningur á húsi.

Mál 1511081 Fyrst á dagskrá 25. janúar 2016, síðast 4. febrúar 2016. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2016

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 136 liður 11

    Grenndarkynningu, vegna byggingarleyfisumsóknar Marinós Stefánssonar fh. Fjarðabyggðar, dagsett 12. nóvember 2015, þar sem sótt var um leyfi að flytja Gamla Lúðvíkshúsið af núverandi lóð á Nesgötu á nýja lóð að Þiljuvöllum 13 á Norðfirði, er lokið.

    Engar athugasemdir bárust.

    Samþykkt var að grenndarkynna umsóknina á 132. fundi nefndarinnar.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út leyfi þegar öll tilskilin gögn liggja fyrir.

  2. Bæjarstjórn, fundur 194 liður 3.11

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 136“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is