Rannsóknir vegna fornleifa við Stöð - Landnámsskáli
Mál 1510205 Fyrst á dagskrá 2. nóvember 2015, síðast 5. nóvember 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 450 liður 6
Fyrirhugað er að fara í fornleifagröft við Stöð í Stöðvarfirði m.a til að athuga hvort um landnámsbústað geti verið að ræða í því landi. Líkur til þess eru taldar mjög góðar.
Vegna rannsóknar á fornleifum við Stöð í Stöðvarfirði ábyrgist sveitarfélagið Fjarðabyggð að þeir fornmunir sem hugsanlega kunna að finnast í þeim tveimur rannsóknarholum sem fyrirhugað er að taka í nóvember 2015 verði forvarðir og þeim komið í vörslu hjá Þjóðminjasafni Íslands eins og lög gera ráð fyrir. Bæjarráð samþykkir að ábyrgjast forvarnir á þeim gripum sem finnast. Vísað til kynningar í menningar- og safnanefndar.
Ábyrgð þessi nær til tveggja rannsóknar hola og er gildistími hennar til 31. desember 2015.
-
Bæjarstjórn, fundur 189 liður 1.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 450“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.