Bréf vegna inntöku barns á Leikskólann Dalborg
Mál 1508060 Fyrst á dagskrá 24. ágúst 2015, síðast 17. september 2015. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Bæjarráð, fundur 440 liður 2
Erindi Margrétar Þórhildar er varðar inntöku barna á leikskólann Dalborg á Eskifirði.
Samkvæmt reglum um leikskóla Fjarðabyggðar er miðað við að börn geti hafið leikskóladvöl við eins árs aldur. Þá er boðið er upp á þjónustu dagforeldra, sé hægt að koma því við. Því miður eru ekki starfandi dagforeldra í Fjarðabyggð nema í Neskaupstað, þrátt fyrir að auglýst hafi verið eftir slíkri þjónustu. Ekki er boðið upp á þjónustu umfram fyrrgreindar leiðir. Bæjarráð getur því ekki orðið við beiðni. Fræðslustjóra falið að svara erindi bréfritara og umfjöllun um leikskólaþjónustu sveitarfélagsins vísað til fræðslunefndar.
-
Bæjarstjórn, fundur 184 liður 6.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 440“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 19 liður 1
Vísað frá bæjarráði erindi Margrétar Þórhildar er varðar inntöku barna í leikskóla. Í bók bæjarráðs segir: "Samkvæmt reglum um leikskóla Fjarðabyggðar er miðað við að börn geti hafið leikskóladvöl við eins árs aldur. Þá er boðið er upp á þjónustu dagforeldra, sé hægt að koma því við. Því miður eru ekki starfandi dagforeldra í Fjarðabyggð nema í Neskaupstað, þrátt fyrir að auglýst hafi verið eftir slíkri þjónustu. Ekki er boðið upp á þjónustu umfram fyrrgreindar leiðir. Bæjarráð gat því ekki orðið við beiðni. Fræðslustjóra falið að svara erindi bréfritara og umfjöllun um leikskólaþjónustu sveitarfélagsins vísað til fræðslunefndar." Fræðslunefnd vekur athygli á því að leikskólar Fjarðabyggðar miða við að taka börn frá eins árs aldri og bjóða upp á dagforeldraþjónustu fyrir yngri börn. Frekari umfjöllun um leikskóla- og dagforeldraþjónustu vísað til vinnu við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2016.
-
Bæjarstjórn, fundur 185 liður 3.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 19“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.