735 Leirukrókur 5 - umsókn um lóð
Mál 1507121 Á dagskrá 27. júlí 2015. 1 færsla í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Lóðir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 123 liður 2
Lagður fram tölvupóstur Páls Snorrasonar fh. Eskju hf, dagsettur 22. júlí 2015, þar sem sótt er um lóðina Leirukrók 5 á Eskifirði til að byggja upp frekari starfsemi tengda fyrirtækinu. Einnig er sótt um að deiliskipulag Leiru 1 verði breytt þannig að lóðirnar við Leirukrók 5, 7, 9 og 11 verði sameinaðar í eina.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta Eskju hf lóðinni að Leirukróki 5 og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Nefndin samþykkir jafnframt að breyta deiliskipulagi Leiru 1.