Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

735 Leirukrókur 11 - umsókn um lóð

Mál 1506188 Fyrst á dagskrá 20. júlí 2015, síðast 13. ágúst 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Lóðir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 436 liður 5

    Vísað frá eigna- skipulags- og umhverfisnefnd. Lagt fram bréf Þorsteins Kristjánssonar f,h. Eskju hf, dagsett 23. júní 2015, þar sem sótt er um lóðina Leirukrók 11 á Eskifirði til að byggja upp frekari starfsemi tengda fyrirtækinu.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta Eskju lóðinni að Leirukróki 11 og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.

    Bæjarráð staðfestir úthlutun lóðarinnar Leirukróks 11 til Eskju.

  2. Bæjarstjórn, fundur 183 liður 8.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 436“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is