Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Kaup á innheimtuþjónustu Fjarðabyggðar og stofnana

Mál 1505105 Fyrst á dagskrá 26. maí 2015, síðast 28. maí 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Bæjarráð, fundur 429 liður 8

    Þennan lið dagskrár sat fjármálastjóri.

    Framlögð tillaga fjármálastjóra um fyrirkomulag kaupa á innheimtuþjónustu Fjarðabyggðar og stofnana.

    Bæjarráð samþykkir að gerð verði verðfyrirspurn vegna kaupa á innheimtuþjónustu þar sem tekið verði mið af heildarkostnaði við innheimtu hvort sem er af hálfu Fjarðabyggðar eða greiðanda sem fellur til á mismunandi innheimtustigum innheimtunnar.

    Markmið með verðfyrirspurn er að samræma allt innheimtuferli Fjarðabyggðar til að auka skilvirkni, bæta árangur og takmarka kostnað.

  2. Bæjarstjórn, fundur 180 liður 1.8

    Fundargerðin „Bæjarráð - 429“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is