Komdu þínu á Framfæri - Ráðstefna Æskulýðsvettvangsins
Mál 1505010 Fyrst á dagskrá 20. maí 2015, síðast 28. maí 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2015
Fræðslunefnd, fundur 16 liður 3
Lögð var fram til kynningar skýrsla sem unnin var af Æskulýðsvettvangnum fyrir m.a. Fjarðabyggð. Í skýrslunni má finna helstu óskir og áherslur ungs fólks í sveitarfélaginu þegar kemur að tómstunda-, æskulýðs- og fræðslumálum. Sérstaklega var farið yfir hugmyndir unga fólksins sem snéru að fræðslumálum. Unga fólkið var í stórum dráttum ánægt með framboð á menntun í heimabyggð, m.a. fjölbreyttu vali og verklegri kennslu, en þau komu einnig með ábendingar um það sem betur mætti fara. Ábendingarnar snéru að auknu famboði á tungumálanámi, leiklist og dansi, fjármálalæsi, menningarferðum í tengslum við skóla, gerð skólamáltíða, bættri aðstöðu fyrir hljómsveitir o.fl. Fræðslunefnd þakkar fyrr skýrsluna og þá vinnu sem ungmenni lögðu á sig í tengslum við gerð hennar. Fræðslunefnd vísar ábendingum sem fram koma í skýrslunni til vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun 2016.
-
Bæjarstjórn, fundur 180 liður 2.3
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 16“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.