Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

Aukið nemendalýðræði varðandi val á mat sem boðið er upp á í grunnskólunum

Mál 1504178 Fyrst á dagskrá 20. maí 2015, síðast 28. maí 2015. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2015

    Fræðslunefnd, fundur 16 liður 2

    Vísað er til fræðslunefndar tillögu frá ungmennaráði Fjarðabyggðar um aukið nemendalýðræði við val á mat í mötuneytum grunnskóla. Ungmennaráð Fjarðabyggðar lagði til við bæjarstjórn að nemendalýðræði varðandi val á mat í grunnskólum yrði aukið. Í greinargerð ungmennaráðsins segir að slíkar lýðræðisumbætur megi útfæra á margan hátt og erfitt sé að segja að ein rétt leið sé fær í þessum efnum. Til dæmis megi skipa sérstakan hóp nemenda í hverjum skóla sem fengi það hlutverk að vera ráðgefandi þegar kemur að því að semja matseðil fyrir vikuna, mánuðinn eða önnina. Þá má einnig hafa einn dag í viku þar sem nemendurnir sjálfir velja hvað er í matinn með kosningu á milli t.d. 5 valmöguleika. Það er mat ungmennaráðs að aukið nemendalýðræði þurfi hvorki að kosta meira fé né koma niður á hollustu eða gæðum matarins. Grunnskólanemendur í Fjarðabyggð séu flestir mjög meðvitaðir um hollt mataræði og vilji ekki ruslfæði þó þeir hafi vissulega ákveðin smekk og kjósi fremur að næra sig á hollum mat sem þeim finnst bragðgóður. Ungmennaráð tók einnig fram að þetta megi ekki túlka sem gagnrýni á þann mat sem hefur verið á boðstólum því yfirleitt hefur hann verið mjög fínn. Málið snýst um að auka lífsgæði og val nemenda þannig að þeir fái að velja það besta sem efni og kostir leyfa.

    Lesa alla bókunina (22 orð til viðbótar)

    Fræðslunefnd tekur vel í hugmyndina og felur fræðslustjóra að vinna að framgangi málsins með skólastjórum grunnskóla og framleiðendum skólamáltíða í grunnskólum Fjarðabyggðar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 180 liður 2.2

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 16“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is