Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2015

740 Beiðni um stækkun lóðar, Strandgötu 62

Mál 1411072 Á dagskrá 27. júlí 2015. 1 færsla í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Lóðir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
  1. 2015

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 123 liður 4

    Lagt fram bréf Hjörleifs Gunnlaugssonar, dagsett 13. júlí 2015, vegna umsóknar um stöðuleyfi fyrir gáma sem eru hluti uppsetningar steinvinnslu við íbúðarhúsið að Strandgötu 62 á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hafnar stöðuleyfinu þar sem gámar standa utan lóða og stangast á við skipulag svæðisins auk þess að vera á skilgreindu ofanflóðhættusvæði. Nefndin ítrekar að gámar og annar búnaður utan lóðar verði fjarlægður sbr. bókun nefndarinnar frá 9. maí 2015.