Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Vakin er athygli á að mennta - og menningarmálarn. hefur sett í opið samráðsferli breytingar á grunnskólum er varða frístundaheimili.

Mál 1410112 Fyrst á dagskrá 20. október 2014, síðast 30. október 2014. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Menning og söfnSkólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 402 liður 29

    Mennta - og menningarmálaráðuneytið hefur sett í opið samráðsferli, breytingar á grunnskólum er varða frístundaheimili.

    Mennta - og menningarmálaráðuneytið hefur sett í opið samráðsferli, breytingar á grunnskólum er varða frístundaheimili. Lagt fram til kynningar og vísað til fræðslunefndar.

  2. Fræðslunefnd, fundur 7 liður 1

    Borist hefur erindi til sveitarfélagsins frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem vakin er athygli á að ráðuneytið hefur sett í opið samráðsferli breytingar á grunnskólum er varða frístundaheimili. Meðfylgjandi er greinargerð starfshóps sem fjallaði um stefnumörkun í málefnum frístundaheimila og tillaga starfshópsins um frumvarpstexta. Í frumvarpstextanum er lögð skýrari lagaumgjörð um frístundastarf barna í grunnskóla. Börn á Íslandi dvelja í auknum mæli á frístundaheimilum og samkvæmt nýlegri könnun nýta 70% barna á aldrinum 6-9 ára þjónustu frístundaheimila. Í Fjarðabyggð nýta nú um 45% barna á aldrinum 6-9 ára þjónustu frístundaheimila og um 65% barna á aldrinum 6-7 ára. Fræðslunefnd fagnar að verið sé að skýra lagaumgjörð um frístundaheimili og felur fræðslustjóra að kynna erindið skólastjórum grunnskóla og fara með þeim yfir frumvarpstextann.

  3. Bæjarstjórn, fundur 165 liður 5.29

    Fundargerðin „Bæjarráð - 402“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Mennta - og menningarmálaráðuneytið hefur sett í opið samráðsferli, breytingar á grunnskólum er varða frístundaheimili.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 165 liður 10.1

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 7“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is