Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Stofnun vinabæjartengsla við Andøy

Mál 1405040 Fyrst á dagskrá 19. maí 2014, síðast 22. maí 2014. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 385 liður 13

    Formaður bæjarráðs fór yfir málið og gerði grein fyrir heimsókn bæjarstjóra sveitarfélagsins Andøy þann 26. júní n.k..

    Á grundvelli fyrri umræðna um vinabæjartengsl sveitarfélaganna Andøy og Fjarðabyggðar samþykkir bæjarráð að unnið verði að formgerð tengslanna.

    Vísað til forseta bæjarstjórnar og bæjarritara sem gangi frá tillögu og greinargerð fyrir fund bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 156 liður 7

    Forseti gerði grein fyrir umræðum sem átt hafa sér stað um vinabæjartengsl Fjarðabyggðar og sveitarfélagsins Andøy í Noregi. Greinargerð verður lögð fyrir næsta fund bæjarstjórnar. Samþykkt með 9 atkvæðum að fresta máli til næsta fundar.

  3. Bæjarstjórn, fundur 156 liður 1.13

    Fundargerðin „Bæjarráð - 385“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is