Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2014

Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á veiðleyfagjöldum.

Mál 1405002 Fyrst á dagskrá 5. maí 2014, síðast 8. maí 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2014

    Bæjarráð, fundur 384 liður 5

    Bæjarráð Fjarðabyggðar lýsir yfir miklum áhyggjum með fyrirhuguð veiðigjöld, samráðsleysi og þann stutta fyrirvara sem gefinn er til umsagnar um frumvarpið. Í ljósi þeirrar staðreyndar að veiðigjöld og skerðingar á sjávarútvegsfyrirtækin í sveitarfélaginu eru gríðarleg, stendur bæjarráð við fyrri umsagnir. Því til stuðnings er bent á úttektir á áhrifum á sveitarfélagið sem unnar voru af KPMG og sendar voru atvinnuveganefnd, m.a. í apríl 2012. Frumvarpið, í óbreyttri mynd, felur í sér þungar álögur á sjávarútvegsfyrirtækin í Fjarðabyggð og kemur til með að hafa veruleg áhrif á rekstur sveitarfélagsins líkt og áðurgreind fyrirtæki.

    Lesa alla bókunina (150 orð til viðbótar)

    Í Fjarðabyggð eru þrjú stór fyrirtæki í sjávarútvegi, ásamt ótal fyrirtækjum og einstaklingum sem hafa atvinnu af því að þjónusta viðkomandi fyrirtæki. Að leggja á svo há veiðigjöld, ásamt skerðingu í potta, hefur mikil áhrif á tekjur sveitarsjóðs í formi skerts útsvars og skertra tekna af hafnargjöldum.

    Bæjarráð hefur miklar áhyggjur af því að veiðigjöldin muni hafa veruleg áhrif á fjárfestingar og framkvæmdir á vegum greinarinnar hér í sveitarfélaginu, ásamt tilflutningi á störfum milli landssvæða.

    Þessu fyrirkomulagi mótmælir bæjarráð Fjarðabyggðar og hvetur núverandi stjórnvöld til að endurskoða fyrirhuguð veiðigjöld með það að markmiði að jafnræði sé gætt milli fyrirtækja og samsetningu aflategunda.

    Bæjarráð Fjarðabyggðar hefur á liðnum árum hvatt til þess að farin verði sáttaleið milli stjórnvalda og sjávarútvegsins og komið á hóflegu veiðigjaldi sem taki mið af afkomu atvinnuvegarins hverju sinni. Með því sé sjávarútvegi á íslandi sköpuð skilyrði til að vaxa og dafna landi og þjóð til heilla.

  2. Bæjarstjórn, fundur 154 liður 4.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 384“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is