730 Hafnargata 5, beiðni um umsögn vegna starfsemi
Mál 1404069 Fyrst á dagskrá 5. maí 2014, síðast 8. maí 2014. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Hafnir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2014
Bæjarráð, fundur 384 liður 20
Vegna bókunar eigna- skipulags- og umhverfisnefndar frá 28.apríl sl., felur bæjarráð bæjarstjóra að eiga samræður við eiganda húseignarinnar að Hafnargötu 5 Reyðarfirði, en óskað hefur verið eftir viðhorfi bæjarins gagnvart því að starfrækt verði flutningastarfsemi í húseigninni. Bæjarráðið telur afar mikilvægt að fá fram framtíðarsýn flutningsfyrirtækjanna og eiganda eignarinnar að Hafnargötu 5, varðandi starfsemi sína í Fjarðabyggð sérstaklega í ljósi þess að nú stendur fyrir dyrum að gera deiliskipulag miðbæjanna, bæði á Eskifirði og Reyðarfirði, sem unnið verður á grunni aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027.
-
Bæjarstjórn, fundur 154 liður 4.20
Fundargerðin „Bæjarráð - 384“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.