Fjárhagsáætlun 2014 - Viðauki 1
Mál 1312073 Á dagskrá 19. desember 2013. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarstjórn, fundur 146 liður 12
Forseti bæjarstjórnar fylgdi viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2014 úr hlaði.
Ósk um aukafjárveitingu til kaupa á yfirbreiðslu fyrir sundlaugina á Eskifirði samkvæmt minnisblaði íþrótta- og tómstundafulltrúa og eigna- og framkvæmdafulltrúa. Bæjarráð fól fjármálastjóra að gera viðauka á grundvelli tillögu fræðslu-og frístundanefndar.
Viðaukinn lýsir breytingu á fjárfestingaráætlun Eignasjóðs Fjarðabyggðar fyrir árið 2014 þannig að fjárfestingar ársins 2014 hækki um kr. 5.000.000 og verði samtals kr. 192.000.000. Enn fremur er lagt til að fjármagna framkvæmdina af eigin fé Eignasjóðs og munu skammtímaskuldir Eignasjóðs hækka sem því nemur og handbært fé Aðalsjóðs lækka um sömu upphæð og verða kr. 423.254.000 í árslok 2014.
Enginn tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir viðaukann með 9 atkvæðum.