Ósk um aukafjárveitingu til kaupa á yfirbreiðslu fyrir sundlaugina á Eskifirði
Mál 1312015 Fyrst á dagskrá 16. desember 2013, síðast 19. desember 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: EskifjörðurÍþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2013
Bæjarráð, fundur 368 liður 2
Fram lagt minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa og eigna- og framkvæmdafulltrúa. Í minnisblaðinu kemur fram að mistök hafi verið gerð þegar keypt var ábreiða yfir sundlaugina á Eskifirði og útséð að hún verður ekki notuð þar, en gæti nýst bæði í sundlauginni á Stöðvarfirði og Norðfirði, en ábreiður í þeim sundlaugum eru báðar orðnar slitnar. Einnig er hægt að selja ábreiðuna með ákveðnum afföllum. Fræðslu- og frístundanefnd leggur til við bæjarráð að ábreiðan fari á Norðfjörð og veitt verði viðbótarfjármagn til eignasjóðs til kaupa á ábreiðu fyrir sundlaugina á Eskifirði.
Bæjarráð samþykkir að ráðist verði í kaup á nýrri yfirbreiðslu fyrir sundlaugina á Eskifirði og umrædd ábreiða fari í sundlaug í Neskaupstað.
Fjármálastjóra falið að gera viðauka á grundvelli tillögunnar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar á fimmtudaginn kemur.
-
Bæjarstjórn, fundur 146 liður 2.2
Fundargerðin „Bæjarráð - 368“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.