Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Ofanflóðavarnir á Eskifirði - beiðni um umsögn

Mál 1305003 Fyrst á dagskrá 13. maí 2013, síðast 16. maí 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: EskifjörðurUmhverfi og veitur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 339 liður 4

    Lagt fram til umfjöllunar erindi frá Skipulagsstofnun dagsett 22. apríl 2013 þar sem óskað er eftir umsögn Fjarðabyggðar á því hvort og á hvaða forsendum fyrirhugaðar ofanflóðavarnir á Eskifirði skulu háðar mati á umhverfisáhrifum. Mannvit hefur sent Skipulagsstofnun tilkynningu f.h. Fjarðabyggðar um ofangreinda framkvæmd skv. 6. gr. laga um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b.

    Tekið fyrir á 63. fundi eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar þar sem nefndin samþykkti tillögu skipulagsfulltrúa um að fyrirhugaðar framkvæmdir séu ekki háðar mati á umhverfisáhrifum og vísaði henni til afgreiðslu og umfjöllunar í bæjarráði og bæjarstjórn.

    Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 135 liður 11

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi málinu úr hlaði.

    Skipulagsstofnun hefur óskað eftir umsögn Fjarðabyggðar á því hvort fyrirhugaðar ofanflóðavarnir á Eskifirði skulu háðar mati á umhverfisáhrifum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti að fyrirhugaðar framkvæmdir séu ekki háðar mati á umhverfisáhrifum og vísaði tillögunni til afgreiðslu og umfjöllunar í bæjarstjórn.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum tillögu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar um að framkvæmdirnar séu ekki háðar mati á umhverfisáhrifum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 135 liður 2.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 339“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is