Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

Fjárhagsáætlun 2012 - viðauki 6

Mál 1301289 Fyrst á dagskrá 28. janúar 2013, síðast 7. febrúar 2013. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarráð, fundur 324 liður 5

    Í samræmi við 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga þarf að samþykkja viðauka vegna tilfærslu á fjármunum á milli málaflokka í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2012. Fram lagðar samandregnar fyrri samþykktir bæjarráðs um ráðstöfun af málaflokki 21-69 óráðstafað auk ráðstöfunar stjórnsýslu- og þjónustusviðs á náms og starsþróunarstyrkjum á árinu 2012.

    Bæjarráð samþykkir viðaukann fyrir sitt leyti og vísar honum til staðfestingar bæjarstjórnar.

  2. Bæjarstjórn, fundur 127 liður 8

    Bæjarstjóri fylgdi viðauka nr. 6 við fjárhagsáætlun 2012 úr hlaði.

    Viðaukinn felur ekki í sér ný útgjöld eða breytingar á rekstrarlegri niðurstöðu eða sjóðstreymisáætlun A-hluta samstæðu fjárhagsáætlunar Fjarðabyggðar fyrir árið 2012.

    Bæjarstjórn samþykkir viðaukann með 9 atkvæðum.

  3. Bæjarstjórn, fundur 127 liður 2.5

    Fundargerðin „Bæjarráð - 324“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is