Snjóflóðavarnir á Drangagilssvæði í Neskaupstað
Mál 1209085 Fyrst á dagskrá 17. september 2012, síðast 20. september 2012. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurUmhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 308 liður 15
Úttekt á snjóflóðavörnum í Drangagili. Fyrir liggur aðkallandi viðhald sem ekki var gert ráð fyrir á fjárhagsáætlun 2012. Lagt fram minnisblað framkvæmdasviðs frá 16.september en þar kemur fram að áætlaður kostnaður er um 3 milljónir. Bæjarráð heimilar að ráðist verði í nauðsynlegt viðhald. Bæjarstjóra falið að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun, á næsta fundi bæjarráðs, þar sem fjárheimildir eru færðar á milli fjárfestingar og reksturs.
-
Bæjarstjórn, fundur 119 liður 9
Bæjarstjóri lagði fram viðauka nr. 5 við fjárhagsáætlun 2012 er varðar brýnt viðhald vegna snjóflóðavarna á Drangagilssvæðinu í Neskaupstað. Lagt er til við bæjarstjórn að 3 millj. kr. verði færðar af fjárfestingarlið fjárhagsáætlunar 2012 vegna snjóflóðavarna í Tröllagili til viðhalds ofanflóðavarna í Drangagili enda sé sá liður lægri sem upphæðinni nemur fyrir árið 2012. Mun færsla fjármuna því ekki hafa áhrif á heildarfjárflæði a-hluta samstæðu sveitarfélagsins árins 2012. Bæjarstjórn samþykkir viðauka nr. 5 með 9 atkvæðum.
-
Bæjarstjórn, fundur 119 liður 2.15
Fundargerðin „Bæjarráð - 308“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.