Talmeinafræðingar
Mál 1209070 Fyrst á dagskrá 15. október 2012, síðast 18. október 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 312 liður 21
Þennan dagskrárlið fundar sat fræðslustjóri.Fyrirspurn frá foreldri, um þátttöku Fjarðabyggðar í talmeinakennslu barns, vísað frá fræðslu- og frístundanefnd. Sjúkratryggingar Íslands greiða ekki kostnað vegna talmeinakennslu barna.Bæjarráð telur greiðslu talmeinakennslu ekki vera hlutverk sveitarfélagsins en það sé hlutverk Sjúkratrygginga Íslands og getur því ekki orðið við beiðni. Fyrir liggur að viðræður eru í gangi milli Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi ráðuneyta um greiðslur vegna talmeinakennslu barna og hvetur bæjarráð hlutaðeigandi aðila til að finna lausn þessara mála.
-
Bæjarstjórn, fundur 121 liður 2.21
Fundargerðin „Bæjarráð - 312“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.