Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2013
Mál 1209056 Fyrst á dagskrá 23. október 2012, síðast 1. nóvember 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárUmhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 313 liður 14
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja tillögu mannvirkjastjóra um að hækka gjaldskrá Sorpstöðvar Fjarðabyggðar vegna söfnunar- og móttökustöðvar og urðunarstaðs um hækkun á vísitölu neysluverðs frá síðustu gjaldskrá breytingu, eða um 4,3 %. Auk þess er lagt til að hækka gjaldskrá aukalega um 2,2 % vegna áætlaðrar hækkunar á vísitölu næsta árs, enda hækkar samningur um sorphirðu miðað við vísitölu neysluverðs mánaðarlega.
Samt sem áður er lagt til að gjald vegna sorphreinsunar- og förgunargjalda verði fyrir árið 2013 lækkað. Eftir lækkun verði:
Sorpförgunargjald kr. 10.000.- á hverja sorptunnu, þ.e. fyrir almenna tunnu.
Sorphreinsunargjald kr. 21.000.- á hverja sorptunnu, þ.e. fyrir almenna tunnu.Gjaldskrá tekur gildi 1. janúar 2013Bæjarráð samþykkir gjaldskrána og vísar henni til fjárhagsáætlunargerðar.
-
Bæjarstjórn, fundur 122 liður 1.14
Fundargerðin „Bæjarráð - 313“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.