Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2012

Gjaldskrár Hitaveitu Fjarðabyggðar 2013

Mál 1209047 Fyrst á dagskrá 23. október 2012, síðast 1. nóvember 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrárUmhverfi og veitur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2012

    Bæjarráð, fundur 313 liður 20

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja að gjaldskrár Hitaveitu Fjarðabyggðar taki ekki breytingum um næstu áramót. Um er að ræða tvær gjaldskrá:

    Gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar, Eskifirði, tók gildi 1.1.2012

    Gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar, fjarvarmaveitur, tók gildi 1.1.2012

    Jafnframt samþykkir nefndin að sundlaugar Fjarðabyggðar á Eskifirði og Norðfirði njóti báðar 15% afsláttar árið 2013, sem er í takt við ákvörðun bæjarráðs frá fyrra ári, sem var þó þá aðeins fyrir sundlaugina á Eskifirði. Jafnframt var gert ráð fyrir að afsláttur hækkaði um 5% ári, þar til að hann yrði 30% árið 2016.

    Bæjarráð samþykkir gjaldskrárnar og vísar þeim til fjárhagsáætlunargerðar. Jafnframt samþykkir bæjarráð að gjaldskrárnar verði teknar til endurskoðunar á miðju ári 2013.

  2. Bæjarstjórn, fundur 122 liður 1.20

    Fundargerðin „Bæjarráð - 313“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is