Gangnaboð 2012
Mál 1208087 Á dagskrá 4. september 2012. 1 færsla í fundargerðum hjá: Landbúnaðarnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Landbúnaðarnefnd, fundur 6 liður 4
Landbúnaðarnefnd samþykkir að fjáreigendur verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur.Landbúnaðarnefnd tilnefnir Sigurð Baldursson fjallskilastjóra fyrir Fjarðabyggð. Göngur skulu fara fram á tímabilinu 15.-25. september 2012. Seinni göngum skal lokið fyrir 15. október 2012.Fyrir 6. nóvember 2012 mun fjallskilastjóri láta kanna og smala þá eyðistaði þar sem hugsanlega er fjárvon. Kostnaður af þeim eftirleitum greiðist úr fjallskilasjóði, kr. 18.000.- pr. dagsverk.Jafnframt samþykkir landbúnaðarnefnd eftirfarandi tillögu fyrir haustið 2012 að skiptingu fjallskiladeildarinnar í gangnasvæði og skulu göngur fara fram sem hér segir: Tilgreindir umsjónaraðilar eru gangnaforingjar. Norðfjarðarsvæði: Gangnastjóri er Axel Jónsson og Leifur Jónsson skal sjá um fjallskil frá Nípu að Fannardalsá. Guðröður Hákonarson skal sjá um fjallskil í Fannardal bæði norðan og sunnan ár. Þórður Júlíusson skal sjá um fjallskil í Seldal og Staðarháls. Sigfinnur Karlsson, Önundur Erlingsson og Jón Þór Aðalsteinsson skulu sjá um fjallskil sunnan Norðfjarðarár og Oddsdal. Á Hólaströnd sjá um fjallskil: Viðar Guðmundsson og Heiðar Sveinsson. Eskifjarðarsvæði: Halldór Jóhannsson er gangnastjóri og hefur umsjón með fjallskilum fyrir utan Hrafnsdal og útúr eins og þörf er á, þó ekki í Viðfirði og Sandvík. Verði vart við fé í Viðfirði eða Sandvík, þá verður gerður út leiðangur til að ná í það. Magnús Guðnason hefur umsjón með fjallskilum frá Bleiksá að Helgustaðadal. Sjöfn Gunnarsdóttir hefur umsjón með fjallskilum í Helgustaðadal og Hrafnadal.Hellisfjarðarsvæði: Lagt er til að allt Hellisfjarðarsvæðið verði smalað samdægurs laugardaginn 22.september 2012, gangnastjórar verði þeir Önundur Erlingsson og Sigfinnur Karlsson og leggi þeir til 5 menn, Sjöfn Gunnarsdóttir leggi til 2 menn, því til viðbótar leggi Fjarðabyggð til 5 menn.Þá sjá um fyrirstöðu vestan Hrafnadals, Sjöfn Gunnarsdóttir og að austan Halldór Jóhannsson. Mjóifjörður: Marsibil Erlendsdóttir er gangnastjóri. Hún hefur umsjón með fjallskilum í Mjóafirði og samkvæmt samkomulagi þá munu Vallamenn smala sínu fé í Mjóafirði. Gildir fyrir öll fjallskilasvæði: Þeir aðilar sem tilgreindir eru sem gangnaforingjar á sínu svæði geta kallað til aðra sem fjár eiga von á þeim svæðum sem þeim eru falin. Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hefur komið á þeirri vinnureglu að fjáreigendur eru ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir eiga fjárvon á samkvæmt Fjallskilasamþykkt fyrir Múlasýslur. Fjallskil á svæðinu frá Bleiká að Hjálpleysuá að sveitafélagsmörkum við Fljótsdalshérað hafa verið framkvæmd af fjáreigendum á Völlum í samráði við fjallskilastjóra Fjarðabyggðar. Sunnan varnarlínu í Reyðarfirði munu fjáreigendur sjá um smölun eins og verið hefur. Verði fjár vart í Reykjadal og austan hans í Mjóafirði verður gerður út leiðangur. Lagt er til að smalað verði helgina 15. til 16. september 2012 og að fjáreigendur í Breiðdal sjái um smölun í Stöðvardal að Kambanesi.