Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2012

Bréf til bæjarráðs varðandi sjávarútvegsauglýsingar

Mál 1205074 Fyrst á dagskrá 21. maí 2012, síðast 24. maí 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Sjávarútvegur og fiskeldi

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2012

    Bæjarráð, fundur 295 liður 1

    Fram lagðir tölvupóstar Árna Einarssonar og Sigurðar E Einarssonar varðandi auglýsingar um sjávarútveg.Bæjarráð vísar í bókun sína frá fundi sem segir:Bæjarráð áréttar í ljósi undangenginnar umræðu að sveitarfélagið kemur ekki fjárhagslega né hefur frumkvæði að þeim auglýsingum sem birst hafa undanfarið í fjölmiðlum. Bæjarráð vill jafnframt árétta að breytingar á lögum um sjávarútvegsmál er mikið hagsmunamál fyrir sveitarfélagið, fyrirtæki og íbúa þess og hefur það meðal annars kostað úttekt KPMG á áhrifum frumvarpanna á Fjarðabyggð. Bæjarráð styður efnislega þær auglýsingar sem fjalla um áhrif frumvarpanna og birtast á landidogmidin.is Þá vill bæjarráð ítreka að það hefur fjallað á fjölmörgum fundum sínum um sjávarútvegsmál og áðurnefnd frumvörp ásamt því að fá um þau hlutlausa úttekt á áhrifum þeirra frá KPMG eins og áður segir. Á grundvelli hennar byggist fyrst og fremst afstaða bæjarráðs enda kemur þar fram hversu veruleg neikvæð áhrif þau hafa á atvinnulíf í sveitarfélaginu.  Á þeim grunni felst efnislegur stuðningur við auglýsingar sem birtast á landiðogmidin.is

  2. Bæjarstjórn, fundur 115 liður 2.1

    Fundargerðin „Bæjarráð - 295“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is