Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

730 - Deiliskipulag fiskihafnar austan Búðarár

Mál 1111006 Fyrst á dagskrá 17. janúar 2013, síðast 21. mars 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Skipulag

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarstjórn, fundur 126 liður 13

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.

    Í framhaldi af bréfi Skipulagsstofnunar 9. nóvember 2012 þar sem sagt er að eftir úrskurð Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála nr. 30/2012, í máli 80/2011 eru deiliskipulög þar sem meira en þrír mánuðir líða frá staðfestingu bæjarstjórnar að birtingu í B-deild Stjórnartíðinda ógild sbr. 3. mgr. 42. skipulagslaga og þarf því að auglýsa aftur.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að deiliskipulagstillagan verði auglýst aftur með áorðnum breytingum skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Þeir sem skiluðu inn athugasemdum þegar skipulagstillagan var auglýst síðast, þurfa ekki að skila inn athugasemdum aftur.

  2. Bæjarstjórn, fundur 130 liður 7

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.

    Til máls tók Eiður Ragnarsson.

    Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum endurauglýst deiliskipulag fiskihafnar austan Búðarár, skipulagsuppdrátt og greinargerð dags. 12.desember 2012. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.