Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2013

735 - Deiliskipulag Símonartúns, hesthúsahverfi

Mál 1103183 Fyrst á dagskrá 17. janúar 2013, síðast 21. mars 2013. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Skipulag

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2013

    Bæjarstjórn, fundur 126 liður 18

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.

    Í framhaldi af bréfi Skipulagsstofnunar 9. nóvember 2012 þar sem sagt er að eftir úrskurð Úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála nr. 30/2012, í máli 80/2011 eru deiliskipulög þar sem meira en þrír mánuðir líða frá staðfestingu bæjarstjórnar að birtingu í B-deild Stjórnartíðinda ógild sbr. 3. mgr. 42. skipulagslaga og þarf því að auglýsa aftur.

    Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að deiliskipulagstillagan verði auglýst aftur skv. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

    Þeir sem skiluðu inn athugasemdum þegar skipulagstillagan var auglýst síðast, þurfa ekki að skila inn athugasemdum aftur.

  2. Bæjarstjórn, fundur 130 liður 12

    Forseti bæjarstjórnar fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.

    Bæjarstjórn samþykkir með 8 atkvæðum endurauglýst deiliskipulag Símonartúns, skipulagsuppdrátt og greinargerð dags. 12.desember 2012. Málsmeðferð verði í samræmi við 42. gr. skipulagslaga.