Nýr þjónustusamningur við Markaðsstofu Austurlands 2011-2013
Mál 1012019 Fyrst á dagskrá 13. febrúar 2012, síðast 16. febrúar 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2012
Bæjarráð, fundur 280 liður 5
Fram lögð tillaga að samkomulagi um tímabundna framlengingu á þjónustusamningi við Markaðsstofu Austurlands sem samþykkt var í atvinnu- og menningarnefnd 9. febrúar s.l. en innihald samnings er alveg sambærilegt við fyrri þjónustusamning.
Samkomulag þetta gildir þar til nýr þjónustusamningur hefur verið gerður um hliðstæða þjónustu með hliðsjón af nýju skipulagi stoðkerfisins á Austurlandi sem til stendur að gangi í gildi vorið 2012. <?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Bæjarráð samþykkir tímabundna framlengingu samningsins og felur bæjarstjóra undirritun hans.
-
Bæjarstjórn, fundur 108 liður 2.5
Fundargerðin „Bæjarráð - 280“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.