Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2010

Gangnaboð 2010

Mál 1009012 Fyrst á dagskrá 3. september 2010, síðast 8. september 2010. 2 færslur í fundargerðum hjá: Landbúnaðarnefnd.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2010

    Landbúnaðarnefnd, fundur 1 liður 3

    Landbúnaðarnefnd samþykkir að fjáreigendur verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því landi sem þeir verði gerðir ábyrgir fyrir fjallskilum á því  landi sem þeir eiga  fjárvon skv.  18 gr. Fjallskilasamþykktar fyrir Múlasýslur.  Fyrir 6.  nóvember 2008 mun fjallskilastjóri  láta kanna og smala þá eyðistaði þar sem hugsanlega er fjárvon.  Kostnaður af þeim eftirleitum greiðist úr fjallskilasjóði  Kr.  18.000.- pr. dagsverk.  Jafnframt samþykkir landbúnaðarnefnd eftirfarandi tillögu fyrir haustið 2010 að skiptingu fjallskiladeildarinnar í gangnasvæði og skulu  göngur fara fram sem hér segir:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Tilgreindir umsjónaraðilar eru gangnaforingjar:Norðfjarðarsvæði:   Gangnastjóri er Axel Jónason og Leifur Jónsson skulu sjá um fjallskil frá Nípu að Fannardalsá.  Guðröður Hákonarson skal sjá um fjallskil í Fannardal bæði norðan og sunnan ár.  Þórður Júlíusson  skal sjá um fjallskil í Seldal, Seldalsháls og Hólaströnd. Sigfinnur Karlsson og Önundur Erlingsson skulu sjá um fjallskil sunnan Norðfjarðarár í Oddsdal og í Hellisfirði og Norðfirði.Eskifjarðarsvæði:Halldór Jóhannesson er gangnastjóri og hefur umsjón með fjallskilum fyrir utan Hrafnsdal og útúr. Magnús Guðnason umsjón með fjallskilum frá Bleiksá að Helgustaðadal.  Sjöfn Gunnarsdóttir umsjón með fjallskilum í Helgustaðadal og Hrafnsdal.   Fjarðabyggð leggur til 3 dagsverk í Hellisfjörð sunnan ár.  Fjallskilastjóri  hefur umsjón með fjallskilum frá Hólmahálsi að Bleiksá. Reyðar-, Fáskrúðs- og Stöðvafjarðarsvæði:Sigurður Baldursson er gangnastjóri Fjarðabyggðar í samráði við fjallskilastjóra Fljótsdalshéraðs sjá um fjallskil á svæðinu frá Hólmahálsi að Fagradalsá að sveitarfélagsmörkum. Sunnan varnarlínu að Stöðvarfirði munu fjáreigendur sjá um fjallskil eins og verið hefur.Mjóifjörður:Marsibil Erlendsdóttir gangnastjóri.  Hún hefur umsjón með fjallskilum í Mjóafirði samkvæmt samkomulagi þá munu Vallamenn smala sínu fé í Mjóafirði. Gildir fyrir öll fjallskilasvæði: Þeir aðilar sem tilgreindir eru sem gangnaforingjar á sínu svæði geta kallað til aðra sem fjár eiga von á þeim svæðum sem þeim eru falin.Göngur skulu fara fram á tímabilinu 18. ? 26. september 2010.  Seinni göngum skal lokið  15. október. Viðurlög:Landbúnaðarnefnd vekur athygli gangnaforingja á að viðurlög við gangnarofi eru Kr. 18.000.-Landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar hefur komið á þeirri vinnureglu að fjáreigendur sem eru ábyrgir fyrir  fjallskilum  á því landi sem þeir eiga fjárvon  á  samkvæmt 18. Gr. fjallskilasamþykktar fyrir Múlasýslur. Vegna 17. gr. fyrrgreindrar samþykktar gerir landbúnaðarnefnd Fjarðabyggðar tillögu um hvernig  göngum skuli háttað á svæði norðan varnarlínu í Reyðarfirði, laugardag 18. september  2010. Smalað frá Hólmanesi að austan og Njörvadalsá að vestan og inn Svínadal að sveitarfélagsmörkum.  3 menn að austan, 2 menn að vestan.   Sunnudag 19. september 2009.  Smalað frá Njörvadalsá að austan og frá varnarlínu í Hjálpleysu upp Fagradal, 2 menn á Sléttadal, 1 maður á Grænafell, 2 menn á Hjálpleysu og 1 mann í Fagradal austan ár.  Landbúnaðarnefnd gefur hlutaðeigandi kost á að koma með breytingar  á fyrirkomulagi og skulu  þær hafa borist fyrir 13. september 2009.

  2. Landbúnaðarnefnd, fundur 2 liður 1

    Guðröður Hákonarson mæti á fund nefndarinnar, vegna breytingar á gangnaboði fyrir árið 2010 á Norðfjarðarsvæði. Gangnaboð verður eftirfarandi:<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />Norðfjarðarsvæði:   Gangnastjóri er Axel Jónason og Leifur Jónsson skal sjá um fjallskil frá Nípu að Fannardalsá. Guðröður Hákonarson skal sjá um fjallskil í Fannardal bæði norðan og sunnan ár, þar með talin Hólaströnd. Þórður Júlíusson skal sjá um fjallskil í Seldal og Staðarháls. Sigfinnur Karlsson og Önundur Erlingsson skulu sjá um fjallskil sunnan Norðfjarðarár í Oddsdal og í Hellisfirði og Norðfirði. Sunnan ár frá Ljósá í Fannardal, er lagt til að eftirtaldar jarðir leggi til gangnamenn.ü  2 menn frá Hofiü  2 menn frá Þrastarlundiü  1 mann frá Ormsstöðumü  1 mann frá Kirkjubóli