Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2012

735 - Deiliskipulag, Högnastaðir, lóð 1

Mál 1005153 Fyrst á dagskrá 26. júlí 2011, síðast 29. mars 2012. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: LóðirSkipulag

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2011

    Bæjarráð, fundur 252 liður 8

    Niðurstaða ofanflóðahættumats vegna frístundahúss í landi Högnastaða. Það er niðurstaða matsins að líkur á að manneskja sem dvelur í frístundahúsi á skipulagssvæðinu farist af völdum ofanflóða sé innan þeirra marka sem teljast ásættanleg samkvæmt reglugerð 495/2007 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða. Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir deiliskipulag Högnastaða lóð 1.

  2. 2012

    Bæjarstjórn, fundur 111 liður 10

    Minniháttar breytingar hafa orðið á deiliskipulaginu Högnastaðir, lóð 1 eftir auglýsingu. Breytingar felast í að byggingarreitur minnkar, leyfileg hámarksstærð frístundahúss minnkar úr 50 m2 í 30 m2 og stærð geymslu minnkar úr 10 m2 í 4 m2. Einnig er möguleg aðkoma að svæðinu af Helgustaðarvegi felld út og er aðkoma einungis möguleg frá heimreið að Högnastöðum.

    Bæjarstjóri fylgdi deiliskipulaginu úr hlaði.

    Enginn tók til máls:

    Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum minniháttar breytingar sem orðið hafa á deiliskipulaginu Högnastaðir, lóð nr. 1 og staðfestir deiliskipulagið.