Heitur pottur við íþróttahúsið á Eskifirði
Mál 1004041 Fyrst á dagskrá 19. apríl 2010, síðast 29. apríl 2010. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn, Mannvirkjanefnd.
Í heiti málsins: EskifjörðurÍþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2010
Mannvirkjanefnd, fundur 32 liður 3
Lagt fram bréf frá Ferðaþjónustunni Mjóeyri, dagsett 9. apríl. En þar bjóðast forsvarsmenn hennar að fjarlægja heitan pott ásamt palli og skjólveggjum sem stendur sunnan við íþróttahúsið á Eskifirði. Fyrir liggur að umræddur pottur sem staðið hefur ónotaður við íþróttahúsið á Eskifirði eftir að ný sundlaug opnaði þar verður ekki notaður við önnur mannvirki Fjarðabyggðar vegna ófullnægjandi búnaðar pottsins. Því þarf að fjarlægja pottinn og skjólveggi í kringum hann og þannig eykst leiksvæði við Grunnskólann. Mun við það falla til töluverður kostnaður. Mannvirkjanefnd samþykkir því að ganga til samninga við Ferðaþjónustuna á Mjóeyri um niðurrif og frágang á svæðinu eftir kröfum Mannvirkjasviðs Fjarðabyggðar. Mun Ferðaþjónustan Mjóeyri ekki fá aðrar greiðslur fyrir verkið en að hirða það efni sem fellur til við rifið.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" />
-
Bæjarstjórn, fundur 70 liður 7.3
Fundargerðin „Mannvirkjanefnd - 32“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.