Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2009

Snjóflóðavarnir í Tröllagili í Norðfirði - framkvæmdum frestað

Mál 0910053 Fyrst á dagskrá 13. október 2009, síðast 5. nóvember 2009. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og NorðfjörðurUmhverfi og veitur

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2009

    Bæjarráð, fundur 166 liður 2

    <?xml:namespace prefix = o />Ályktun bæjarráðs Fjarðabyggðar vegna tilkynningar um frestun framkvæmda við snjóflóðavarnir í Tröllagili á Norðfirði: Bæjarráð Fjarðabyggðar varar við þeirri ákvörðun um frestun framkvæmda við Tröllagil í Norðfirði sem tilkynnt er í bréfi umhverfisráðuneytisins dags. 7. október 2009.  Í tilkynningunni kemur fram að fyrri áætlanir um framkvæmdir við þver- og leiðigarð neðan Tröllagils á Norðfirði geti ekki gengið eftir og væntanlega hafi ofanflóðasjóður ekki fjármagn til verkefnisins fyrr en á árinu 2013.Bæjarráð minnir á að þegar framkvæmdir hófust við snjóflóðavarnir í Drekagili á Norðfirði var ákveðið að varnargarðar ofan byggðar í Neskaupstað skyldu reistir í samfellu. Framkvæmdum við Drekagil lauk kringum aldamót og átti þá að hefja varnir við Tröllagil enda snjóflóðahætta á landinu ekki metin meiri annars staðar.  Þær framkvæmdir frestuðust m.a. vegna þenslu á svæðinu.  Sú röksemd á ekki við lengur.  Ofanflóðasjóður býr samkvæmt nýjasta ársreikningi yfir tæplega 6 milljörðum kr. í eigin fé og hefur það hækkað um rúmlega milljarð kr. milli ára..  Tekjur ofanflóðasjóðs eru árlegt gjald sem lagt er á allar brunatryggðar húseignir.  Fjármunir ofanflóðasjóðs eru því sérstaklega innheimtir til þess að vinna að vörnum gegn slysum af völdum snjóflóða en ekki almennur tekjustofn fyrir ríkissjóð.  Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2010 er gert ráð fyrir 592 milljónum kr. í framkvæmdir á vegum sjóðsins en fjármagnstekjurnar einar og sér voru 676 milljónir kr. árið 2008.  Í fjárlagafrumvarpinu er þar að auki gert ráð fyrir 1400 milljónum kr. í tekjur af ofanflóðagjaldi.Það er bæjarráði Fjarðabyggðar óskiljanlegt að áform séu uppi um að fresta þessari framkvæmd sem nýverið var kynnt bæjaryfirvöldum og bæjarbúum - framkvæmd sem snertir stærstu öryggishagsmuni - framkvæmd sem fjármunir eru til fyrir - og framkvæmd sem mikil þörf er fyrir til vegna atvinnulífshagsmuna á staðnum.  Bæjarráð krefst þess því að ákvörðunin verði afturkölluð og horft til þess að sagan sýnir að í húfi eru ríkustu hagsmunir sem um getur.Samþykkt samhljóða á fundi bæjarráðs 13. Október 2009

  2. Bæjarstjórn, fundur 63 liður 1.2

    Fundargerðin „Bæjarráð - 166“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is