Ársreikningur 2008 - Síðari umræða
Mál 0905144 Fyrst á dagskrá 28. maí 2009, síðast 4. júní 2009. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Fjármál og gjaldskrár
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2009
Bæjarstjórn, fundur 59 liður 1
Ársreikningur 2008
Helga Jónsdóttir fylgdi ársreikningi úr hlaði. Þennan dagskrárlið sátu Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála og Magnús Jónsson endurskoðandi KPMG hf. Þau skýrðu út niðurstöður ársreikningsins, framsetningu hans og skýrslu endurskoðanda. Til máls tóku Valdimar O. Hermannsson, Smári Geirsson og Guðmundur Þorgrímsson. Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum að vísa ársreikningi Fjarðabyggðar og stofnana vegna ársins 2008 til síðari umræðu í bæjarstjórn 4.6. <?xml:namespace prefix = o />
-
Bæjarstjórn, fundur 60 liður 1
Til máls tóku Helga Jónsdóttir, Jens Garðar Helgason, Valdimar O. Hermannsson og Smári Geirsson. <?xml:namespace prefix = st1 />Jóna Árný Þórðardóttir forstöðukona fjármála veitti upplýsingar um ársreikninginn. Bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks vegna afgreiðslu á ársreikningi 2008, endurskoðun fjárhagsáætlunar 2009 og þriggja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2010 - 2012."Undirritaðir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins samþykkjum hér í dag framlagðan ársreikning Fjarðabyggðar 2008, endurskoðaða fjárhagsáætlun 2009 og þriggja ára áætlun Fjarðabyggðar og stofnana 2010 - 2012. Vert er þó að vekja athygli á þeirri stöðu sem fram kemur í framangreindum gögnum og í endurskoðunarskýrslu KPMG frá maí 2009. Sérstaklega ber að vekja athygli á því sem lýtur að neikvæðri niðurstöðu og aukningu á skuldum þannig að handbært fé frá rekstri rétt nær að standa undir afborgunum. Það þarf því að passa vel upp á tekjur sveitarfélagsins og auka þær til muna, auk þess sem hafa þarf betri stjórn á framkvæmdum og kostnaði með auknum aga í stjórnun sveitarfélagsins. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu hér eftir sem hingað til, taka ábyrga afstöðu til einstakra mála, gagnrýna það sem þykir miður og betur mætti fara, og leggja þannig okkar lóð á vogarskálar að bættri stöðu og rekstri Fjarðabyggðar"Þannig lagt fram 4.júní 2009Valdimar O. Hermannsson, Jóhanna Hallgrímsdóttir og Jens Garðar Helgason. Ársreikningur 2008 samþykktur með 9 atkvæðum.<?xml:namespace prefix = o />