Húsnæðismál umhverfis- og mannvirkjamiðstöðvar og slökkviliðs.
Mál 0903049 Á dagskrá 24. mars 2009. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarráð.
Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdirUmhverfi og veitur
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2009
Bæjarráð, fundur 142 liður 9
Framlögð tillaga innleiðingarhóps vegna húsnæðismála umhverfis- og mannvirkjamiðstöðvar og tillaga og greinargerð mannvirkjastjóra frá 20.3. Bæjarráð fellst á tillögu innleiðingarhópsins um að ekki sé að svo stöddu rétt að framkvæma tillögu ParX um að húsnæði slökkvistöðvarinnar á Fáskrúðsfirði hýsi jafnframt starfsemi þjónustumiðstöðvar. Ástæða þessa er að innleiðingarhópurinn telur breytingar á húsnæði slökkvistöðvarinnar ekki meðal þess sem er brýnast í framkvæmdum bæjarins auk þess sem ástand á fasteignamarkaði er þannig að líklegra er að viðunandi verð fáist fyrir áhaldahús bæjarins ef sala verður ákveðin síðar. Hópurinn telur jafnframt að eftir að nýlega bættist í bílaflota slökkviliðsins sé húsnæði þjónustumiðstöðvar á Norðfirði ekki nægjanlegt stórt til að rúma bæði starfsemi slökkvistöðvarinnar og umhverfis- og mannvirkjamiðstöðvar.