Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirUngmennaráð

Ungmennaráð, fundur 27

9. nóvember 2026, kl. 16:30 til 17:30, að Búðareyri 2, fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Eygló Rut Hákonardóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Victoria Rut Nguyen Smáradóttir, aðalmaður
  • Eva Sól Heimisdóttir, aðalmaður
  • Sara Antonía Friðþjófsdóttir, aðalmaður
  • Brynhildur K. Valbjörnsdóttir, aðalmaður
  • Erlendur Jörgen Kristinsson, aðalmaður
  • Gunnhildur Anna Birgirsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hrafnhildur Ásta Njálsdóttir, embættismaður
  • Eygló Rut Hákonardóttir, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Áhrifadagar ungmenna 2026 - Barnvænt samfélag

    Mál 2611070 Allur ferill málsins

    Sagt frá hvað fór fram á Áhrifadögum ungmenna. Þær unnu sérstaklega með tómstundir og þátttöku. Lausnin var að gera tómstundir lögbundnar. Annað stórt málefni var geðheilbrigði ungmenna. Þau hittu ungmenni úr ungmennaráðum frá öllu landinu. Þar var rætt hvernig hægt væri að gera ungmennaráð sýnilegri og áhrifaríkari í samfáleginu.

    Stýrihópur fyrir barnvænt samfélag ræddur. Óskað er eftir ungmennum úr ungmennaráði í stýrihópinn. Þau munu skiptast á að taka þátt í stýrihópnum, tvö í hvert skipti.

  2. 2. Fræsla fyrir skrifstofu Fjarðabyggðar um ungmennaráð

    Mál 2611071 Allur ferill málsins

    Rætt mikilvægi þess að starfsfólk viti af Ungmennaráðinu og nýti þau og þeirra sýn.

    Ungmennaráð stefnir á að fara í skólana og kynna mikilvægi og hlutverk þeirra.

    Upplifun ungmenna frá Eskifirði er að krakkar og kennarar frá Reyðarfirði séu mótfallnir því að ungmennin séu að nýta þeirra íþróttahús.

    Önnur mál sem komu til umræðu

    - Andvökunótt/gistinótt

    Ungmennaráð er spennt fyrir að halda það á fásk eða rey í íþróttahúsinu

    Væri gaman að nota skjáinn sem er á rey, til að fara í just dance eða kareoke

    - Mætingarstig

    Mikilvægt að tekið sé inn í myndina íþróttakrakka sem mæta þegar þau geta í féló og langar að komast á samfés en ná ekki jafn góðri mætingu og aðrir

    Rætt lokaball og samfés, Lokaballið er sett 6. maí og samfés 8.

    - Væri gott að færa lokaballið á annan tíma

    Sameiginlegar opnanir:

    - Ungmennunum langar að hafa féló opnun í Oddsskarði

    - Möguleikar í Sköpunarmiðstöðinni

    Verkmenntaskóli Austurlands

    Mættu þau fá höllina á Reyðarfirði 1 skipti í mánuði ?

    tónlistarfólk á böllum sem ungmenni eru spennt fyrir

    - Jói Pé og Króli

    - Tónhylur

    - ÚlfurÚlfur

    DJ-ar :

  3. 3. Ástand á félagsmiðstöðvum Fjarðabyggðar

    Mál 2611072 Allur ferill málsins

    Atom:

    Mjög góð staðsetning og krakkarnir almennt ánægðir með staðinn. Poolborðið er ónýtt. Mikið um gamla sófa. Áhugi fyrir að breyta og taka sviðið sem er pullusvæði. Spaðarnir í pingpong eru orðnir lélegir.

    Knellan:

    Aðstaðan er alls ekki nógu góð.

    - Gólfin skítug og ónýt

    - Göt í loftinu

    - Gluggarnir eru orðnir ónýtir

    - Eitt poolborðið er ónýtt, reglulega er brotið kjuðana

    - Þörf fyrir að mála

    - Sófi í sjónvarpsherbergi er brotinn og hættulegur

    - Stiginn er skítugur

    - Klósettin eru skítug

    - Vatnið úr vöskunum er gult og rautt

    - Oft er kalt því ofnarnir eru lélegir

    - Vilja örbylgjuofn og föndurdót

    - Ljósin virka ekki nema að kýlt sé í þau-

    - Vilja sjá nýtt gólf

    - Leðursófarnir eru klístraðir

    - Þarf að henda ísskápnum og kaupa skóhillur.

    - Myndu vilja meiri borð og stóla til að til dæmis spila eða föndra

    - Vantar nýjar pílur. Þarf að fjarlægja gamla hurð sem er uppi. Þarf að læsa í Valhöll.

    Zveskjan

    - Brúnt vatn kemur úr vöskum úr kk baði

    - Ekki nóg að hafa bara eitt klósett inn á kk baði

    - Sófarnir uppi eru gamlir

    - Ofnarnir lélegir - mjög kalt uppi

    - Fúkkalykt í allri zveskjunni

    - vantar píluspjald

    - athuga hvort sé mygla

    Æskó

    - Nokkuð gott ástand

    - sumir sófar eru brotnir

    - Mætti bæta umgengni ungmennanna

    Prízund og Stöðin

    - Vantar starfsfólk

    ALmennt:

    - vantar fjölbreyttari dagskrá

    - vantar pening fyrir fjölbreyttari dagskrá

    Ungmennaráð óskar eftir að þetta mál sé lagt fyrir fjölskyldunefnd