NefndirSkipulags- og framkvæmdanefnd
Skipulags- og framkvæmdanefnd, fundur 66
13. ágúst 2026, kl. 15:00 til 17:12, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aron Leví Beck.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurjón Andrés Jónasson, varamaður
- Kristinn Þór Jónasson, varaformaður
- Stefán Þór Eysteinsson, varamaður
- Húnbogi Sólon Gunnþórsson, aðalmaður
- Hafþór Eiríksson, aðalmaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
- Aron Leví Beck Rúnarsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 955 liður 10
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 13. ágúst lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 419 liður 2
Til máls tóku Stefán Þór Eysteinsson, Hrafn Bjarnason og Ragnar Sigurðsson.
Fundargerð skipulags- og framkvæmdanefndar frá 13. ágúst staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Þakviðgerðir Grunnskóla Breiðdalsvík
Mál 2510022 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu verkefnisins og tillögur að áframhaldandi viðhalds vinnu.
-
2. Stekkjargata - Torg og garðsvæði við Egilsbúð
Mál 2607162 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga hönnun vestan við Egilsbúð. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir hönnunina og felur sviðsstjóra að koma með kostnaðaráætlun fyrir verkið á fund að nýju.
-
3. Verkefni tengd framkvæmd Rarik í Miðstræti og Hafnargötu Nesk
Mál 2608050 Allur ferill málsins
Farið yfir ýmis verkefni tengt framkvæmd Rarik í miðbænum í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir fyrirhugaðar framkvæmdir við þrengingu á Miðstræti og breikkun gangstéttar.
-
4. Tjaldsvæði Norðfjörður - hönnun og framkvæmdir
Mál 2506139 Allur ferill málsins
Staða framkvæmda við nýtt tjaldsvæði í Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar kynninguna.
-
5. Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfirði
Mál 2608008 Allur ferill málsins
Umsókn um lóð Egilsbraut 16, 740 Norðfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd tekur vel í erindið og felur stjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram í samráði við umsækjanda.
-
6. Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðstræti 10 Neskaupstað
Mál 2607038 Allur ferill málsins
Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi Miðstræti 10 Neskaupstað. Skipulags- og framkvæmdanefnd hafnar umsókn um breytingu á aðgengi og afmörkun sérafnota við Miðstræti 10.
-
7. Framkvæmdaleyfi - malarvinnsla
Mál 2607167 Allur ferill málsins
Umsókn um frakmvæmdaleyfi vegna malarvinnslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd samþykkir efnistökuna og felur skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar öllum tilskyldum gögnum hefur verið skilað.
-
8. Lögreglusamþykkt
Mál 2607120 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísar lögreglusamþykkt sveitarfélagsins til skipulags- og framkvæmdanefndar til vinnslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra og sjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.
-
9. Umferðarsamþykkt
Mál 2504048 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísar umferðarsamþykkt sveitarfélagsins til skipulags- og framkvæmdanefndar til vinnslu. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sjórnanda byggingar-, skipulags- og umhverfisdeildar að vinna málið áfram.
-
10. Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi
Mál 2608038 Allur ferill málsins
Hvatning um að taka afstöðu til loðdýraræktar í aðalskipulagi. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir erindið.
-
11. Styrkir til nýtingar og leitar á jarðhita - Jarðhiti jafnar leikinn -
Mál 2503223 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu jarðhitaleitar á Fáskrúðsfirði. Skipulags- og framkvæmdanefnd þakkar fyrir kynninguna.
-
12. Aðkoma að Tröllavegi í Neskaupastað
Mál 2606171 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað COWI vegna akstursgreiningar á gatnamótum Tröllavegur - Strandgata. Skipulags- og framkvæmdanefnd felur sviðsstjóra að vinna málið áfram.