Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMannvirkja- og veitunefnd

Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 6

12. október 2022, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Stefán Þór Eysteinsson, formaður
  • Ívar Dan Arnarson, varamaður
  • Pálína Margeirsdóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Svanur Freyr Árnason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 769 liður 15

    Fundargerð mannvirkja- og veitunefndar frá 12. oktober lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 340 liður 10

    Enginn tók til máls.

    Fundagerð mannvirkja- og veitunefndar frá 12. október staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023

    Mál 2208082 Allur ferill málsins

    Starfs- og fjárhagsáætlun Mannvirkja- og veitunefndar 2023. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðstjóra að útfæra fjárhagsáætlun nefndarinnar í samræmi við umræður á fundinum og vísað til endanlegrar ákvörðunar bæjarráðs.

  2. 2. Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2023

    Mál 2209112 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar 2023 lögð fram til umfjöllunar. Mannvirkja- og veitunefnd vísar gjaldskrá vatnsveitu Fjarðabyggðar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  3. 3. Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2023

    Mál 2209171 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2023. Mannvirkja- og veitunefnd vísar gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  4. 4. Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2023

    Mál 2210052 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2023 tekin til umræðu. Mannvirkja- og veitunefnd vísar gjaldskrá fjarvarmaveitu Fjarðabyggðar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.

  5. 5. Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði.

    Mál 2210020 Allur ferill málsins

    Erindi frá áhugahóp um Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði. Mannvirkja- og veitunefnd þakkar erindið og felur sviðstjóra að ræða við fjölskyldu- og útivistarsvæðis á Fáskrúðsfirði.

  6. 6. Starfs- og fjárhagsáætlun stjórnar menningarstofu- og safnastofnunar 2023

    Mál 2208081 Allur ferill málsins

    Stjórn menningarstofu og safnastofnunar vísar til mannvirkja- og veitunefndar að kanna með hagræðingu orkukaupa vegna reksturs húsnæðis í málaflokknum. Þar er átt við m.a. félagsheimili og söfn og tækifæri til útboðs orkukaupa. Mannvirkja- og veitunefnd felur forstöðumanni veitna að skoða innkaup á orku.

  7. 7. Erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar

    Mál 2209228 Allur ferill málsins

    Fram lagt erindi frá UNICEF á Íslandi til Fjarðabyggðar um tækifæri barna til áhrifa og ungmennaráð.

    Bæjarráð vísaði erindinu til nefnda sveitarfélagsins til umfjöllunar. Mannvirkja- og veitunefnd tekur vel í erindi frá UNICEF á Íslandi og mun halda áfram að skapa barnavænar leiðir til þáttöku.

  8. 8. Fyrirspurn um framtíð tjaldsvæðis á Stöðvarfirði

    Mál 2207084 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til umfjöllunar og kostnaðargreiningar mannvirkja- og veitunefndar fyrirspurn Íbúasamtaka á Stöðvarfirði um framtíð tjaldsvæðisins á Stöðvarfirði og staðsetningu þess á íþróttavelli. Mannvirkja- og veitunefnd bíður með að svara erindinu á meðan verið er að klára minnisblað varðandi tjaldsvæði í Fjarðabyggð.

  9. 9. Gjaldskrá fráveitu 2023

    Mál 2210061 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá fráveitu 2023 tekin til umræðu. Mannvirkja- og veitunefnd vísar gjaldskrá fráveitu Fjarðabyggðar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs.