NefndirMannvirkja- og veitunefnd
Mannvirkja- og veitunefnd, fundur 20
10. október 2023, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Svanur Freyr Árnason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Stefán Þór Eysteinsson, formaður
- Elís Pétur Elísson, varaformaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Árni Þórhallur Helgason, varamaður
Starfsmenn
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun mannvirkja- og veitunefndar 2024
Mál 2305071 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf fjármálastjóra um úthlutun bæjarráðs á fjárhagsramma nefndarinnar fyrir árið 2024, annars vegar rekstur málaflokka í A hluta og hins vegar rekstur sjóða í A hluta. Vísað til áframhaldandi vinnu fjárhagsáætlunargerðar.
-
2. Gjaldskrá fráveitu 2024
Mál 2309152 Allur ferill málsins
Gjaldskrá fráveitu fyrir árið 2024 lögð fram til umræðu. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra að vinna gjaldskrá í samræmi við umræður og leggja fyrir á næsta fund.
-
3. Gjaldskrá hitaveitu 2024
Mál 2309155 Allur ferill málsins
Gjaldskrá hitaveitu fyrir árið 2024 lögð fram til umfjöllunar. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra að vinna gjaldskrá í samræmi við umræður og leggja fyrir á næsta fund.
-
4. Gjaldskrá vatnsveitu 2024
Mál 2309167 Allur ferill málsins
Gjaldskrá vatnsveitu 2024 lögð fram til umfjöllunar. Mannvirkja- og veitunefnd felur sviðsstjóra að vinna gjaldskrá í samræmi við umræður og leggja fyrir á næsta fund.
-
5. Gjaldskrá fjarvarmaveita 2024
Mál 2309099 Allur ferill málsins
Gjaldskrá fjarvarmaveitu 2024 lögð fram til umfjöllunar ásamt minnisblaði fjármálastjóra. Mannvirkja- og veitunefnd samþykkir tillögu fjármálastjóra á breytingum á gjaldskrá.
-
6. Lúðvíkshúsið endurbyggt
Mál 1811023 Allur ferill málsins
Vísað frá stjórn menningarstofu og safnastofnunar til mannvirkja- og veitunefndar að framkvæmdum við endurbyggingu Lúðvíkshúss verði lokið á árinu 2024 og gert verði ráð fyrir fjármagni til verksins í fjárfestingaráætlun. Vísað í fjárhagsáætlunargerð.
-
7. Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti
Mál 2309231 Allur ferill málsins
Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti. Erindi tekið fyrir og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram.
-
8. Egilsbraut 4 - Nytjamarkaður ósk um aukið rými
Mál 2310038 Allur ferill málsins
Framlagt erindi nytjamarkaðarins Steinsins í Neskaupstað. Framlagt og kynnt.
-
9. Framkvæmdasvið verkefni 2023
Mál 2303230 Allur ferill málsins
Vísað til bæjarráðs.