Landbúnaðarnefnd, fundur 8
5. júlí 2013, kl. 11:00 til 12:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Árni Steinar Jóhannsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurður Baldursson, aðalmaður
- Halldór Árni Jóhannsson, aðalmaður
- Ármann Elísson, aðalmaður
- Sigfús Vilhjálmsson, aðalmaður
- Axel Jónsson, aðalmaður
- Árni Steinar Jóhannsson, embættismaður
- Valur Sveinsson, embættismaður
Dagskrá
-
1. Sauðfjárveikivarnarlína í Reyðarfirði
Mál 1011086 Allur ferill málsins
Nefndin fór yfir minnisblað umhverfisstjóra dagsett 3.júlí 2013 þar sem teknar eru saman niðurstöður af fundi með fulltrúum Matvælastofnunar hinn 19.júní 2013. Fundurinn fjallaði um sauðfjárveikivarnarlínu, girðingar og beitarmál í Fjarðabyggð.
Ennfremur eru í minnisblaðinu tillögur um aðgerðir til þess að hefta ágang búfjár inn í þéttbýli, skógræktarlönd og friðuð svæði. Nefndin samþykkir þessar fyrirhuguðu aðgerðir eins og þær eru settar fram í minnisblaðinu og vísar þeim til afgreiðslu bæjarráðs.