Hafnarstjórn, fundur 81
1. mars 2011, kl. 17:00 til 19:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 236 liður 14
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 81 frá 1.mars lögð fram.
Dagskrá
-
1. Fundagerðir Hafnarsambands Íslands árið 2011
Mál 1102072 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands frá 4. febrúar 2011. Kynnt.
-
2. Ársreikningur Hafnarsambands Íslands 2010
Mál 1102073 Allur ferill málsins
Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2010 til kynningar.
-
3. Fundagerðir CI á árinu 2011
Mál 1102034 Allur ferill málsins
Fundargerð stjórnar Cruise Iceland frá 3. febrúar 2011. Kynnt.
-
4. Vöttur Klassaskoðun vor 2011
Mál 1102172 Allur ferill málsins
Kynnt niðurstaða athugunar á kostnað við upptöku Vattar og botnhreinsun. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að ganga til samninga við Stjörnublástur á Seyðisfirði.
-
5. Áfamhaldandi framkvæmdir við klæðningu á Gamla garðinn á Stöðvarfirði
Mál 1002079 Allur ferill málsins
Fundargerð dags. 17. febrúar 2011 frá opnun tilboða í áframhaldandi klæðningu á gamla garðinn á Stöðvarfirði. Hafnarstjórn staðfesti samning við lægstbjóðanda.
-
6. Framkvæmd við þekju olíubryggju Norðfirði
Mál 1102049 Allur ferill málsins
Fundargerð dags. 24. febrúar 2011 frá opnun tilboða í gerð þekju á olíubryggjuna á Norðfirði. Hafnarstjórn samþykkti að ganga til samninga við lægstbjóðanda sem var Nestak frá Norðfirði.
-
7. Aðstaða til að láta fjara undan bátum
Mál 1101288 Allur ferill málsins
Bréf frá Gunnari Hjaltasyni dags. 16. febrúar 2011 þar sem ítrekuð er fyrri beiðni og leggur til aðra staðsetningu til að láta fjara undan smábátum. Hafnarstjórn frestar málinu til næsta fundar og framkvæmdastjóra falið að afla nánari gagna.
-
8. Beiðni um fjárframlag til Sjóminjasafns Austurlands
Mál 1102024 Allur ferill málsins
Bréf frá stjórn Sjóminjasafns Austurlands dags. 1. febrúar 2011 þar sem þess er farið á leit við Hafnarsjóð Fjarðabyggðar að hann veiti fjárframlag upp á 16,8 millj. kr. til kaupa á aðstöðu fyrir safnið. Hafnarstjórn samþykkir að veita styrk til verkefnisins 11,5 milljónum af liðnum óráðstafað. Auk þess veitir hafnarsjóður 5,3 milljónir kr. stuðning til verkefnisins sem verður endurskoðaður til endanlegrar ákvörðunar við gerð næstu fjárhagsáætlunar.