Hafnarstjórn, fundur 338
20. apríl 2026, kl. 10:30 til 11:15, í fjarfundi. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)
Fundinn sátu
- Heimir Snær Gylfason, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Bryngeir Ágúst Margeirsson, aðalmaður
- Tinna Hrönn Smáradóttir, aðalmaður
- Einar Hafþór Heiðarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
- Jóna Árný Þórðardóttir, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Svanur Freyr Árnason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 414 liður 5
Fundargerðir hafnarstjórnar teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 20. apríl staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Útboð á dýpkun Frystihússbryggja Eskifjarðarhöfn
Mál 2510179 Allur ferill málsins
Niðurstaða útboðs í dýpkun við Frystihússbryggju á Eskifirði tekin fyrir. Hafnarstjórn samþykkir að óskað verði eftir skýringarfundum með bjóðendum þar sem bæði tilboð eru yfir kostnaðaráætlun. COWI falið að boða til fundanna með bjóðendum, hafnarstjóra, sviðsstjóra skipulags- og framkvæmdasviðs, stjórnanda hafna og COWI. Stefnt er að sameiginlegum fundi hafnarstjórnar og bæjarráðs miðvikudaginn 22.apríl n.k.