Hafnarstjórn, fundur 192
20. febrúar 2018, kl. 16:30 til 17:05, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
- Ævar Ármannsson, aðalmaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, aðalmaður
- Kristín Ágústsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Hákon Ásgrímsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 554 liður 15
Fundargerð hafnarstjórnar, nr.192 frá 20.febrúar 2018, lögð fram til kynningar.
Dagskrá
-
1. Í skugga valdsins
Mál 1712003 Allur ferill málsins
Á fundi stjórnar Sambands íslenskra sveitarfélaga sem haldinn var 26. janúar 2018 var lögð fram viljayfirlýsing, dags. 11. janúar 2018, um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Viljayfirlýsing var lögð fram til kynningar í hafnarstjórn.
-
2. Endurnýjun réttinda 2018
Mál 1802090 Allur ferill málsins
Árni Bergþór Kjartansson og Hafþór Eide Hansson hafa óskað eftir umsagnar hafnarstjórnar/forstöðumanns hafna vegna endurnýjunar á hafnsöguskírteini. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra hafna að ganga frá umsögn.
-
3. Skemmd á Blika SU-10
Mál 1801059 Allur ferill málsins
Báturinn Bliki SU-10 skemmdist lítillega þegar hann var færður til í Reyðarfjarðarhöfn síðastliðið haust að eigenda forspurðum. Hafnarstjórn felur framkvæmdastjóra að semja um afslátt af hafnargjöldum til að koma á móts við tjón bátseiganda.
-
4. Mjóeyrarhöfn 2.áfangi - stækkun
Mál 1210091 Allur ferill málsins
Fyrsta áfanga dælingar ársins 2018 vegna stækkunar Mjóeyrarhafnar er lokið. Framvæmdastjóri kynnir framgang verksins og ræðir næstu skref.