Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 180

24. maí 2017, kl. 16:00 til 17:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Steinþór Pétursson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Sævar Guðjónsson, formaður
  • Pálína Margeirsdóttir, varaformaður
  • Ævar Ármannsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Steinþór Pétursson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 523 liður 17

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 180 frá 24.maí 2017, lögð fram til kynningar.

  • Bæjarstjórn, fundur 224 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð hafnarstjórnar frá 24.maí 2017 staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Umsókn um undanþágu frá lóðsskyldu fyrir Guz Roman skipstjóra á Samskip Skaftafell 10.maí 2017

    Mál 1705084 Allur ferill málsins

    Erindi frá Samskip dags. 10. maí 2017 þar sem óskað er eftir undanþágu frá lóðsskyldu að og frá Mjóeyrarhöfn fyrir Guz Roman skipstjóra á MS Samskip Skaftafell. Hafnarstjórn staðfestir undanþágu frá hafnsögu fyrir Guz Roman skipstjóra á Samskip Skaftafell.

  2. 2. Umsókn um lóð að Bólsvör 2 Stöðvarfirði undir gámasvæði

    Mál 1705106 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um umsókn um lóð að Bólsvör 2 á Stöðvarfirði. Framkvæmdastjóri hefur lagt inn umsókn til eigna- skipulags- og umhverfisnefnda um lóð á Stöðvarfirði undir gámasvæði.

    Hafnarstjórn staðfestir heimild framkvæmdastjóra til að sækja um lóð og gera lóðina klára til notkunar.

  3. 3. Samningur um viðbótarhafnarlóð 13. maí 2017

    Mál 1705139 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum lágu drög að viðbótarleigusamningi vegna svæðis fyrir flutningsgeyma gass.

    Hafnarstjórn samþykkir fyrirliggjandi drög að samningi.

  4. 4. Grjótvarnir í Fjarðabyggð

    Mál 1503195 Allur ferill málsins

    Fyrir fundinum lá minnisblað vegna grjótvarna dags. 16. maí 2017 þar sem farið er yfir þá kafla sem leitað hefur verið eftir verðum í. Aðallega er um að ræða grjótvarnir á Eskifirði auk stutts kafla við ramp björgunarsveitarinnar á Reyðarfirði. Áætlaður heildarkostnaður við þessar varnir er um 25 millj.kr.

    Hafnarstjórn samþykkir minnisblaðið og felur framkvæmdastjóra að ganga frá málinu. Verkið verður fjármagnað af liðnum óráðstafað.

  5. 5. Sjávarútvegssýning 2017

    Mál 1705140 Allur ferill málsins

    Bréf frá Íslensku sjávarútvegssýningunni 2017 þar sem sýningin er kynnt og boðin þátttaka, en sýningin verður haldin 13. til 15. september 2017.

    Hafnarstjórn frestar ákvörðun í málinu.

  6. 6. Lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði

    Mál 1504173 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur að útboðsgögn vegna lengingar stálþils við nótakant á Eskifirði eru tilbúin.

    Hafnarstjórn samþykkir að setja rekstur þilsins í útboð.

  7. 7. Efnistaka í sjó, undirbúningsvinna - Reyðarfjörður og Norðfjarðarflói

    Mál 1703139 Allur ferill málsins

    Drög að matsáætlun lögð fram til kynningar.

  8. 8. Göngustígar - Strandstígar

    Mál 1705141 Allur ferill málsins

    Umfjöllun um frágang á bak við grjótvarnir og gróft mat á kostnaði við þá vinnu. Vísað til áframhaldandi vinnu og umfjöllunar við fjárhagsáæltunargerð 2018.

  9. 9. Umsókn um rannsóknarleyfi vegna fyrirhugðarar efnistöku við Eyri í Reyðarfirði

    Mál 1705151 Allur ferill málsins

    Lagt til fram til kynningar staðfesting Orkustofnunar á umsókn Hafnarsjóðs um rannsóknarleyfi vegna efnistöku við Eyri í Reyðarfirði.

  10. 10. Beiðni um ferðastyrk

    Mál 1705191 Allur ferill málsins

    Erindi frá Björgunarsveitinni Gerpi sem barst 23. maí 2017 þar sem óskað er eftir ferðastyrk fyrir 3 fulltrúa á ráðstefnu um fjöldabjörgun á sjó. Tveir fulltrúanna koma frá Björgunarsveitinni Gerpi og einn frá Geisla. Óskað er eftir styrk að upphæð 150.000 kr.

    Hafnarstjórn samþykkir að veita umbeðinn styrk að upphæð 150 þ.kr.