Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFjölskyldunefnd

Fjölskyldunefnd, fundur 71

11. nóvember 2026, kl. 16:15 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (9)

Fundinn sátu

  • Ragnar Sigurðsson, formaður
  • Helga Rakel Arnardóttir, varaformaður
  • Alma Eiðsdóttir, varamaður
  • Þórunn Ólafsdóttir, varamaður
  • Salóme Rut Harðardóttir, varamaður

Starfsmenn

  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður
  • Aðalheiður Björk Rúnarsdóttir, embættismaður
  • Líneik Anna Sævarsdóttir, embættismaður
  • Bergey Stefánsdóttir, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Starfsáætlanir og skólanámskrár 2026-27

    Mál 2611060

    Starfsáætlun Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram og henni fylgt eftir með stuttri kynningu skólastjórnenda.

  2. 2. Endurskoðun fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar frá 2019

    Mál 2611059

    Fjölskyldunefnd samþykkir erindisbréfið fyrir sitt leiti og vísar því til samþykktar í bæjarráði.

  3. 3. Beiðni um upplýsingar varðandi húsverði

    Mál 2611056

    Fjölskyldunefnd samþykkir tillöguna og vísar henni til stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu, sviðsstjóra fjölskyldusviðs og sviðsstjóra framkvæmdasviðs.

  4. 4. Kynningar fyrir fjölskyldunefnd

    Mál 2609096 Allur ferill málsins

    Forstöðumenn frístundaþjónustu kynntu starf sumar- og vetrarfrístundar í Fjarðabyggð. Fjölskyldunefnd þakkar fyrir kynninguna.

  5. 5. Erindi um rekstrarstyrk

    Mál 2610062

    Samtök um Kvennaathvarf leita til Fjarðabyggðar um styrk til að geta veitt konum og börnum skjól sem flýja þurfa heimili sín sökum ofbeldis. Fjölskyldunefnd samþykkir að styrkja Kvennaathvarfið um 300.000 kr á árinu 2027.

  6. 6. Framtíðarsýn um stafræna þróun og gagnamál í félagsþjónustu sveitarfélaga

    Mál 2611045

    Farið yfir aðgerðaráætlun um stafræna þróun og gagnamál í félagsþjónustu sveitarfélaga.