Fjölskyldunefnd, fundur 67
30. september 2026, kl. 16:15 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 5. Fundargerð ritaði Laufey Þórðardóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Ragnar Sigurðsson, formaður
- Helga Rakel Arnardóttir, varaformaður
- Sigrún Eva Grétarsdóttir, aðalmaður
- Anna Guðný Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Salóme Rut Harðardóttir, varamaður
Starfsmenn
- Laufey Þórðardóttir, embættismaður
- Líneik Anna Sævarsdóttir, embættismaður
- Bergey Stefánsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 963 liður 9
Fundargerð fjölskyldunefndar nr. 67 tekin til umfjöllunar og afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 423 liður 4
Fundargerðir fjölskyldunefndar nr. 67 og 68 lagðar fram til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Til máls tóku: Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir og Hrafn Bjarnason
Fundargerð fjölskyldunefndar nr. 67 er staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Skýrsla stjórnanda fræðslumála og skólaþjónustu
Mál 2311040 Allur ferill málsins
Stjórnandi fræðslummála og skólaþjónustu fór yfir stöðu framkvæmda við skólahúsnæði Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla á Breiðdalsvík og áhrif framkvæmda á skólastarfið.
-
2. Skóladagatöl 2026-2027
Mál 2601102 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir framlagðar breytingu á skóladagatölum fyrir skólaárið 2026-2027. Sigrún Eva vék af fundi vegna setu í skólaráði
-
3. Skráningadagar og sumarlokun leikskóla
Mál 2609290 Allur ferill málsins
Sviðstjóra mannauðs og umbótasviðs falið að taka saman mönnun leikskóla og tækifæri til að skapa aukinn sveigjanleika með fækkun skráningadaga og breytingu á skipulagi sumarfría. Tekið fyrir að nýju að þeirri vinnu lokinni.
-
4. Starfs- og fjárhagsáætlun fjölskyldusviðs 2027
Mál 2602108 Allur ferill málsins
Lögð fram tillaga að launaáætlun 2027 og fjallað um áherslur á áframhaldandi vinnu í fjárhagsáætlunargerð. Fjölskyldunefnd felur sviðstjóra að skila launaáætlun til fjármálastjóra.
-
5. Ferðaþjónusta fatlaðra
Mál 2609219 Allur ferill málsins
Stjórnandi félagsþjónustu og barnaverndar leggur fyrir minnisblað varðandi endurskoðun á rekstri ferðaþjónustu fatlaðra. Fjölskyldunefnd leggur til að aflað verði verðtilboða í samræmi við tillögu 2.
-
6. Landssöfnun - Uppbygging Reykjalunds
Mál 2609205 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd fjallaði um styrkbeiðni um uppbyggingu Reykjalunds. Fjölskyldunefnd getur því miður ekki orðið við styrkbeiðninni að þessu sinni.
-
7. Umsókn um íþróttastyrk
Mál 2607169 Allur ferill málsins
Fjölskyldunefnd samþykkir styrkveitingu til Knattspyrnufélags Austfjarða fyrir árið 2026, í samræmi við reglur Fjarðabyggðar um frístundastyrki til barna og unglinga í íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi, sem og úthlutunarreglur um styrki til íþrótta- og tómstundastarfs. Nánari upplýsingar um úthlutun styrkja og fjárhæðir til einstakra félaga má finna í máli nr. 2606219 „Umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki 2026“.
Helga Rakel vék af fundinum vegna stjórnarsetu í KFA